Feginn að geta deilt myndum af syninum

Drake og sonur hans Adonis.
Drake og sonur hans Adonis. skjáskot/Instagram

Tónlistarmaðurinn Drake birti í fyrsta skipti myndir af syni sínum, Adonis Graham, í lok mars síðastliðinn. Hann segir í viðtali að hann sé feginn að geta loksins deilt syni sínum með heiminum öllum. 

Drake var í erfiðri stöðu eftir fæðingu sonarins sem hann átti með konu sem hann var ekki í sambandi með. Óljóst var í nokkurn tíma hver faðir drengsins litla væri en eftir DNA-próf kom í ljós að Drake væri faðirinn. 

„Þetta var frábært. Það var frábært að deila þessu með heiminum. Ég vaknaði bara einn morguninn og hugsaði, veistu hvað? Þetta er bara eitthvað sem mig langar til að gera,“ sagði Drake í viðtali við Young Money Radio á dögunum. 

Hann segist ekki hafa planað það í langan tíma að deila myndum af sonum sínum heldur bara gert það einn daginn. 

„Ég vil bara getað farið út með syni mínum og deilt minningum með honum. Ég vil ekki að bara af því ég ákvað að verða frægur þá þurfi allir mínir nánustu að fela sig undir teppi. Ég vildi bara losna undan því öllu,“ sagði Drake.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert