Lögfræðingur Bynes segir hana ekki ólétta

Bynes og Michael sögðu bæði að þau ættu von á …
Bynes og Michael sögðu bæði að þau ættu von á sínu fyrsta barni. skjáskot/Instagram

David Esquibias, lögfræðingur leikkonunnar fyrrverandi Amöndu Bynes segir að hún sé ekki ólétt, tveimur mánuðum eftir að Bynes sjálf tilkynnti um að hún ætti von á barni. 

Bynes tilkynnti um miðjan mars að hún ætti von á barni og birti sónamynd með nafninu sínu. Samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiðla á þeim tíma lét lögfræðingurinn hennar hana eyða tilkynningunni og sagðist ekki geta svarað hvort Bynes ætti von á barni eða ekki. Unnusti Bynes, Paul Michael, birti einnig óléttutilkynningu en eyddi henni. 

Nú segir lögfræðingurinn í viðtali við People að Bynes sé alls ekki ólétt. Óljóst er hvort Bynes hafi verið ólétt á einhverjum tímapunkti eða hvort hún hafi logið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert