Sonur Skúla og Grímu kominn í heiminn

Skúli Mogensen og Gríma Björg Thorarensen eignuðust lítinn dreng í …
Skúli Mogensen og Gríma Björg Thorarensen eignuðust lítinn dreng í gærmorgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skúli Mo­gensen, fyrr­ver­andi for­stjóri Wow air, og Gríma Björg Thor­ar­en­sen inn­an­húss­hönnuður eignuðust sitt fyrsta barn saman í gær. Fyrir á Skúli þrjú börn með fyrrverandi eiginkonu sinni. 

Skúli greindi frá því í færslu á Facebook að heilbrigður drengur hafi komið í heiminn í gærmorgun. „Litli prinsinn mætti með látum í gær kl 10.54, heilbrigður, stæltur og glæsilegur eins og móðir sín! 53 cm og 4.160 kg. Allt gekk eins og í sögu og pabbi að springa úr stolti!,“ skrifar Skúli. 

Barnavefurinn óskar þeim hjartanlega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert