Rupert Grint orðinn faðir

Rupert Grint er orðinn faðir.
Rupert Grint er orðinn faðir. Wikipedia

Harry Potter-stjarnan Rupert Grint og kærasta hans Georgia Groome eignuðust litla stúlku fyrr í vikunni. Þetta er fyrsta barn parsins. 

Talsmaður parsins sagði í viðtali við E! News: „Rupert Grint og Georgia Groome staðfesta með gleði að dóttir þeirra er komin í heiminn.“

Fréttirnar af fæðingu dótturinnar koma aðeins mánuði eftir að fjallað var um að þau ættu von á barni. Þau hafa að mestu haldið sig úr sviðsljósinu síðustu ár og beðið fjölmiðla um að virða einkalíf sitt. Þau hafa verið í sambandi síðan 2011.

Grint er hvað best þekktur fyrir hlutverk sitt sem Ronald Weasley í kvikmyndunum um Harry Potter. Groome er einnig leikkona og hefur farið með hlutverk í nokkrum breskum kvikmyndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert