Eignaðist barn 2 árum eftir bílslysið sem breytti öllu

Ruthie Ann Miles á von á sínu þriðja barni.
Ruthie Ann Miles á von á sínu þriðja barni. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Ruthie Ann Miles og eiginmaður hennar Jonathan Blumenstein eignuðust dóttur í apríl síðastliðnum. Í mars voru tvö ár síðan Miles, þá gengin 7 mánuði á leið, lenti í bílslysi ásamt 5 ára dóttur þeirra, Abigail. 

Miles slasaðist alvarlega og missti barnið sem hún gekk með 2 mánuðum seinna. Hin 5 ára gamla Abigail lést einnig í slysinu. Þær mæðgur urðu fyrir bíl sem keyrði yfir á rauðu ljósi. 

Í mars síðastliðnum tilkynntu Miles og Blumenstein að þau ættu von á barni nú í vor. „Okkur langar til að deila góðum fréttum með ykkur: Við eigum von á öðru barni í vor. Við sendum þakkir til allra þeirra sem staðið hafa við bakið á okkur í kjölfar slyssins, hafa haft okkur í bænum sínum, kaffært okkur í ást, hvatt okkur áfram, leyft okkur að vera og syrgja síðastliðin tvö ár, og nú gleðjast með okkur,“ skrifaði Miles í færslu á Instagram.

Miles hefur gert það gott í leikhúsum vestanhafs og hlaut meðal annars hin virtu Tony-verðlaun fyrir hlutverk sitt í leikritinu The King and I. Hún sneri aftur í leikhúsið um ári eftir slysið.

View this post on Instagram

💛 3 generations of April Babies 💛

A post shared by Ruthie Ann Miles (@ruthieannmiles) on May 9, 2020 at 12:48pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert