Sakar Thompson um að falsa faðernispróf

Tristan Thompson og Khloé Kardashian þegar allt lék í lyndi.
Tristan Thompson og Khloé Kardashian þegar allt lék í lyndi. Ljósmynd/ Instagram

Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian og körfuboltakappinn Tristan Thompson hafa sent konu, sem heldur því fram að Thompson hafi barnað hana, aðvörun. Ef konan hættir ekki að halda því fram að Thompson sé faðir barns hennar á hún í hættu að parið fyrrverandi fari í mál við hana að því fram kemur á vef E!

Konan sem heldur því fram að Thompson hafi barnað sig heitir Kimberly Alexander. Hún hefur tjáð sig um málið á samfélagsmiðlum. Slúðurmiðillinn Gossip of the City hefur einnig birt skjöl sem eiga að sýna að Thompson hafi farið í faðernispróf í byrjun árs. Á miðlinum voru einnig birtar myndir af meintum samskiptum Thompson við Alexander. 

Í bréfi til Alexander biður lögmaður parsins fyrrverandi, Kardashian og Thompson, Alexander að hætta dreifa uppspuna um þau sem er ærumeiðandi. Í bréfinu sem E! hefur undir höndum kemur fram að Thompson hafi farið í faðernispróf sem reyndist vera neikvætt. 

„Það hefur verið sannað að herra Thompson er ekki faðir barns þíns og við krefjumst þess að þú hættir að halda því fram að hann sé það og að hann og fröken Kardashian hafi á einhvern hátt falsað niðurstöður faðernisprófsins,“ skrifar lögmaðurinn konunni meðal annars í bréfinu og sakar hana um að vilja 15 mínútur af frægð. Krefst hann meðal annars um að hún eyði því sem hún hefur skrifað um Thompson og Kardashian á samfélagsmiðlum.  

Körfuboltakappinn á tvö börn. Prince Thompson kom í heiminn árið 2016. Árið 2018 eignaðist hann True Thompson með Khloé Kardashian. Parið hætti saman stuttu seinna eftir að upp komst um framhjáhald hans. 

Tristan Thompson.
Tristan Thompson. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert