Í tveggja vikna sóttkví til að hitta synina

Britney Spears á tvo syni.
Britney Spears á tvo syni. AFP

Söngkonan Britney Spears fór í tveggja vikna sóttkví til að hitta syni sína að því er fram kemur á vef TMZ. Spears á synina Jayden og Sean með fyrrverandi eiginmanni sínum, Kevin Federline, þeir eru fæddir árin 2005 og 2006.

Spears fór til Louisianaríkis í Bandaríkjunum til að hitta fjölskyldu sína í vor. Hún kom heim til Los Angeles í lok apríl og vildi þá hitta syni sína. Barnsfaðir söngkonunnar krafðist þess þá að Spears færi í tveggja vikna sóttkví áður en hún fengi að hitta syni sína. Spears mótmælti ekki kröfum fyrrverandi eiginmanns síns. Síðan Spears kom úr sóttkví er hún sögð hafa hitt syni sína tvisvar á heimili sínu en aðeins í nokkra klukkutíma í einu. 

Heimildarmenn TMZ segja Federline hafa verið með þá Jayden og Sean í heimakennslu frá því í mars vegna kórónuveirufaraldursins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert