Með samviskubit yfir að þurfa að vinna

Kelly Rowland fær samviskubit yfir að þurfa að vinna.
Kelly Rowland fær samviskubit yfir að þurfa að vinna. AFP

Tónlistarkonan Kelly Rowland segir að hún sé með nagandi samviskubit gagnvart syni sínum þegar hún fer í vinnuna. Rowland á sonin Titan með eiginmanni sínum Tim Weatherspoon. 

„Ég reyni bara að minna sjálfa mig á þá staðreynd að hann er alltaf hamingjusamur, líka þegar hann fær ekki athygli mína,“ sagði Rowland í viðtali við UsWeekly

„Hann er enn þá kátur krakki og ég sýni honum hvernig ábyrgð lítur út, þannig að ég reyni að vera ekki of hörð við sjálfa mig því ég vil kenna honum að vera ábyrgur og ég vil að hann sjái mig vinna svo í framtíðinni vilji hann fá sér vinnu og finna ástríðu fyrir því sem hann gerir,“ sagði Rowland.

Titan litli er fimm ára og Rowland hefur dvalið meira heima með honum en ella vegna kórónuveirunnar. „Við vinnum alls konar mismunandi verkefni. Við förum í feluleik, við litum, við slökum á,“ sagði Rowland. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert