Dóttir Jerry Hall og Mick Jagger með bleikt hár

Georgia May Jagger glæsileg með bleikt hár.
Georgia May Jagger glæsileg með bleikt hár. mbl.is/skjáskot Instagram

Georgia May Jagger dóttir Jerry Hall og Mick Jagger hefur ekki langt að sækja hæfileika sína sem fyrirsæta. Þó hún hafi verið alin upp á tónlistarferðalagi með foreldrum sínum og hefur því meiri reynslu af partýstandi en margir aðrir, hefur hún fundið sinn stað í lífinu. Sem fyrirsæta og talskona fyrir móðir jörð, jöfn réttindi fólks í heiminum og margt fleira.

Hún þykir einstaklega lík móður sinni, fyrirsætunni Jerry Hall, og er engu minna vinsæl en móðir hennar var á sínum tíma sem fyrirsæta. 

Hún hefur vakið athygli að undanförnu fyrir að vera með bleikt hár eða í raun hár í allskonar litum. Hún notar vörur frá Bleach London sem hafa orðið vinsælar á tímum kórónuveirunnar þar sem margir hafa þurft að lita hárið heima hjá sér og eru þá til í að prófa allskonar liti sem hægt er að þvo úr hárinu. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert