Tilnefnd til BET-verðlauna aðeins 8 ára

Blue Ivy Carter og Beyoncé eru báðar tilnefndar.
Blue Ivy Carter og Beyoncé eru báðar tilnefndar. AFP

Blue Ivy Carter, dóttir stjörnuparsins Beyoncé Knowles og Jay-Z er tilnefn til BET-verðlaunanna í ár. Þetta eru fyrstu verðlaunin sem hún er tilnefnd til, enda aðeins átta ára gömul. 

Hún er tilnefnd fyrir lagið Brown Skin Girl en hún syngur í laginu ásamt móður sinni og Wizkid og Saint Jhn. 

Lagið Brown Skin Girl er á plötunni The Lion King: The Gift sem Beyoncé gaf út kjölfar frumsýningarinnar á The Lion King sem var endurgerð á síðasta ári.

Beyoncé sjálf hlaut tilnefningar í þremur öðrum flokkum, besta plata eftir konu í flokki R&B og poppi, plötu ársins fyrir Homecoming: The Live Album og bestu kvikmynd ársins fyrir Homecoming. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert