„Ég mun alltaf elska móður Stormi“

Kylie Jenner með Stormi dóttur sína.
Kylie Jenner með Stormi dóttur sína. mbl.is/skjáskot Instagram

Kylie Jenner og Travis Scott eru samkvæmt heimildarmanni Daily Mail mun betri í að ala upp Stormi, nú þegar þau hafa skilið að skiptum en á meðan þau voru par. 

Jenner sem er 22 ára eignaðist dótturina Stormi í febrúar árið 2018 með rapparanum Scott. Þrátt fyrir skilnaðinn þeirra hafa þau haldið í vinskapinn og sett Stormi í öndvegi. Þegar hún átti sem dæmi tveggja ára afmæli á dögunum fóru þau saman með hana í Disney veröldina. 

Þegar Travis Scott varð 28 ára skrifaði Jenner á síðuna hans að hann væri besti pabbi í heimi og hún óskaði honum velfarnaðar á afmælinu svo fleiri dæmi séu tekin. 

Jenner og Scott hafa sést saman í auknu mæli að undanförnu. Meðal annars úti á lífinu um síðustu helgi. Ekki er vitað fyrir víst hvort þau séu að hugsa um að taka saman aftur, en Scott hefur látið þau ummæli falla að hann beri ennþá tilfinningar til Jenner.  

„Ég mun alltaf elska móður Stormi,“ sagði hann í viðtali við XXL tímaritið í desember í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert