Á fréttavef Harvard háskóla má finna grein eftir Liz Mineo þar em hún ræðir við dr. Ronald Fergusson um bókina hans: The Formula: Unlocking the Secrets to Raising Highly Successful Children.
Ferguson lærði hagfræði í MIT háskólanum og hefur kennt fög í opinberri stjórnsýslu og stefnumörkun í Harvard Kennedy háskólanum í þrjátíu ár. Hann skrifaði áðurnefnda bók í samvinnu við blaðamanninn Tatsha Robertson um hvernig uppeldi hefur áhrif á velgengni barna.
Fyrir tíu árum síðan setti Ferguson á laggirnar verkefnið: Hvernig var ég alin/alinn upp, á meðal nemenda sinna. Robertson setti inn í rannsóknina einstaklinga sem þóttu hafa skarað framúr í samfélaginu, stofnendur fyrirtækja og aðila sem voru leiðandi í Bandaríkjunum og Ferguson tók foreldra nemenda sinna inn í rannsóknina.
Eftir að hafa greint allar niðurstöður fann Ferguson út ákveðið mynstur í uppeldi þeirra sem skara framúr. Hann skipti þessum niðurstöðum niður í átta atriði sem eru eftirfarandi:
1. Foreldrar sem eru kennarar
Foreldrar sem kenna börnum sínum að tileinka sér hluti og leysa vandamál áður en þau byrja í skóla og leikskóla gegna mikilvægu hlutverki í uppeldi barna sinna. Það er vegna þess að þegar börn hafa tileinkað sér eitthvað af þeim hlutum sem á að kenna í skólanum, þá hafa þau jákvæð áhrif á kennara sína sem börnin upplifa sem ákveðna styrkingu til að gera vel reglulega í lífinu. Það virðist byggja upp jákvætt viðmót og sjálfsvirðingu barnanna.
2. og 3. Þegar foreldrar passa upp á barnið
Næstu tvö uppeldisatriðin eru þegar foreldrar passa upp á að skólinn sé að veit barninu það sem það þarf, með því að bregðast við ef nauðsyn krefur. Og síðan þegar foreldrar passa upp á að barnið sé ekki hlunnfarið þegar kemur að tækifærum. Foreldrar geta verið efnalítil, en með þessa þrá fyrir börnin sín að þeim gangi vel. Þessir foreldrar leggja vanalega mikið á sig fyrir börnin sín og hætta ekki fyrr en þau hafa fengið það sem börnin þurfa.
4. Foreldrar sem sýna börnum veröldina
Það er ekki sjálfgefið að fólk sem á pening sýni börnum sínum betur veröldina heldur en efnaminni foreldrar gera. Börn sjá veröldina í gegnum það að fara í leikhús, á listasöfn eða á bókasafnið. Með því að kynna þau fyrir fólki sem er gott fyrir það að þekkja. Sýnir fyrirmyndir og áhuga og hluti sem barnið getur notað inn í framtíðina.
5. Foreldrar sem aðhyllast heimspeki
Þeir foreldrar sem svara erfiðum spurningum frá börnum sínum, og leiðbeina þeim í að finna tilganginn sinn í lífinu, eru til fyrirmyndar að mati rannsakenda. Börn eru einstaklega forvitin um allt í lífinu, og ef foreldrar gefa sér tíma til að svara börnum, þá eflist þekking þeirra og innsæi. Þessir foreldrar leyfa börnum sínum að taka þátt í lífínu og skilja um hvað lífið snýst.
6. Fyrirmyndir
Foreldrar sem eru góðar fyrirmyndir sjálf, eru góðir áttavitar fyrir börnin sín inn í framtíðina. Börn horfa á það sem foreldrar sínir gera, í mun meiri mæli en að hlusta á hvað þau segja. Þau fylgjast með hvernig foreldrarnir ná árangri í lífinu og herma eftir því.
7. Sáttasemjarinn
Þeir foreldrar sem kenna börnum virðingu fyrir sjálfum sér og öðru fólki eru foreldrar sem aðstoða börn við að ná góðum árangri í lífinu. Þetta eru foreldrar sem aðstoða börnin sín í gegnum áskoranir, hvernig þau eiga að haga sér við kennara og skólastjórnendur og passa upp á hagsmuni sína í öllum aðstæðum.
8. Innri rödd barnsins
Röddin sem sem barnið heyrir í höfðinu eftir að það fer að heiman, er vanalega það sem leiðir manneskjuna áfram í lífinu. Ef röddin er vongóð og hvetur unga fólkið til að leysa hlutina og halda áfram. Þá reynist það fólki vel í framtíðinni.
Þeir foreldrar sem hafa öll þessi atriði í uppeldi sínu leggja sitt af mörkum til að búa til barn með framúrskarandi möguleika inn í framtíðina.