Kattakaffihúsið er fyrsta kaffihúsið af sínu tagi á Íslandi. Kaffihús af þessu tagi hafa verið að ryðja sér til rúms út um allan heim sl. ár en það fyrsta opnaði í Taiwan 1998. Kattakaffihús eru sérstaklega vinsæl í Asíu en hafa opnað sl. ár í Bandaríkjunum, Kanada og út um alla Evrópu.
Markmið kaffihúsins er að skapa hlýlegt og notalegt umhverfi þar sem fólk getur slakað á, gætt sér á góðum veitingum og hitt kisurnar. Kisurnar á staðnum eru að leita sér að framtíðarheimili og er velferð þeirra höfð að leiðarljósi.
Kattakaffihúsið er því frábær staður fyrir kattavini. Það er staðsett að Bergstaðarstræti 10 a og er frábær staður fyrir barnafjölsyldur í sumar.