Hertogynja segir sögur í samkomubanni

Sarah Ferguson segir börnum sögur.
Sarah Ferguson segir börnum sögur. Skjáskot/Instagram

Sarah Ferguson hertogynja af York hefur verið iðin við að segja börnum sögur á Youtube undir yfirheitinu Storytime with Fergie and Friends. Þar les hún ýmsar barnabækur fyrir yngstu börnin til þess að stytta stundir þeirra á þessum erfiðu tímum kórónuveirunnar.

Barnamenning er hertogynjunni mikið hjartans mál en sjálf hefur hún skrifað eigin barnabækur. Í myndböndunum sínum á Youtube gefur hún ekkert eftir, skreytir sig af miklum móð og les af innlifun fyrir börnin.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert