Kona Jamies Olivers missti fóstur

Jamie og Jools Oliver með þrjú af börnum sínum.
Jamie og Jools Oliver með þrjú af börnum sínum. skjáskot/Instagram

Eiginkona kokksins Jamies Olivers, Jools, missti fóstur í vor meðan á samkomubanni stóð. Jools, sem er 46 ára, hefur greint frá því að frá því hún eignaðist sitt fimmta barn 2016 hafi hún misst fóstur þrisvar, nú síðast í vor. Þessu deilir hún í hlaðvarpsþættinum Made By Mammas.

Jools hefur alltaf verið opinská um missinn og þegar hjónin fögnuðu 20 ára brúðkaupsafmæli minntust þau „fimm lítilla stjarna á himninum“ sem þau misstu frá sér. 

Hún segir að þau hafi lengi langað í sjötta barnið. „Já, virkilega, en ég er búin að missa fóstur þrisvar og það reynir á andlegu hliðina. Ég þarf að huga að því hvort það sé góð hugmynd andlega sem líkamlega þar sem ég er 46 ára. Þetta er eilítið vafasamt. Jamie er samt alveg til í þetta. Ég á ekki mikinn tíma eftir, kannski eitt ár. Svo loka ég þessum kafla í lífi mínu.

Læknirinn spurði hvernig mér liði. Ég hugsaði málið og þar sem þetta er fimmta fósturlátið er hugsunarhátturinn orðinn þannig að ég segi bara: Jæja, ég er ólétt, en það mun líklegast ekki heppnast þannig að ég held bara áfram. Ég er hætt að vera jákvæð.

Síðustu tvö fósturlátin hafa verið mér frekar hættuleg og fjölskyldan mín vill að ég hætti. Allir segja: Þú átt fimm heilbrigð börn nú þegar, vertu þakklát. Ég skil afstöðu þeirra en ég er bara hætt að segja þeim frá þessu. Ég sagði ekki mömmu minni frá síðustu óléttunni því hún hefði orðið svo áhyggjufull.“

View this post on Instagram

20 exciting, happy, fun wonderful years married to my best friend ❤️ we were due to renew our wedding vowels this summer but that can wait! 20 years married but together 27 years my first true love ❤️ Yes I drive you Bonkers and you probably deserve a medal etc..but being with you feels like home (and you know much I love to be at home)!!! I treasure the daily texts you send, you are romantic and constantly positive funny and a dedicated brilliant dad ❤️ we have created 5 wonderful children and lost our 5 little stars in the sky. Thank you for loving me the way you do ❤️ we did it, on to the next chapter x Was devastated to have lost out real wedding video in one of our house moves so this is cobbled together from home videos. Truly the happiest day with the most wonderful memories. Still 20 years later my dance moves need updating 🤣 better sort that out for our next wedding 🏹🤍 xxx

A post shared by Jools Oliver (@joolsoliver) on Jun 24, 2020 at 3:24am PDT

View this post on Instagram

My valentine ❣️

A post shared by Jools Oliver (@joolsoliver) on Feb 14, 2020 at 10:13am PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert