Dóttir Jenner með rándýrt veski

Kylie Jenner og Stormi eru alltaf flottar á því.
Kylie Jenner og Stormi eru alltaf flottar á því. Skjáskot/Instagram

Stormi Webster er bara tveggja ára en hún er strax farin að velja sér fyglihluti frá stórum tískuhúsum. Móðir hennar, raunveruleikastjarnan Kylie Jenner, birti mynd af henni á dögunum þar sem hún sést með handtösku frá Louis Vuitton. 

Taskan sem umræðir er smágerð útgáfa af hinni vinsælu Nano Speedy Bag frá tískuhúsinu. Stormi litla var með hvíta og marglitaða útgáfu af töskunni en hana er ekki að vinna í vefverslun Louis Vuitton. Þar er hinsvegar að finna brúnu útgáfuna af töskunni og kostar hún 1.180 bandaríkjadali eða um 165 þúsund íslenska krónur. 

Þetta er ekki fyrsta handtaskan frá Louis Vuitton sem Stormi eignast en hún á líka svarta útgáfu af töskunni, enda algjör nauðsyn að geta valið hvað passar best við fötin hverju sinni. 

Stormi með umrædda tösku.
Stormi með umrædda tösku. Skjáskot/Instagram
View this post on Instagram

daddy dropped off a new chair for stormi😫😍🖤 and omg this girl threw the bag over her shoulder i can’t.

A post shared by Kylie 🤍 (@kyliejenner) on Jan 8, 2019 at 5:53pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert