Fékk síðbúið steypiboð frá Alexöndru Helgu

Myndir úr steypiboðinu birtust á Instagram. Hér má sjá móðurina …
Myndir úr steypiboðinu birtust á Instagram. Hér má sjá móðurina Móeiði ásamt dóttur sinni og Alexöndru Helgu hins vegar. Samsett mynd

Alexandra Helga Ívarsdóttir, kokkur og eiginkona knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðsonar, hélt stórkostlegt steypiboð fyrir vinkonu sína Móeiði Lárusdóttur í vikunni. Undir venjulegum kringumstæðum eru konur enn ólétt í slíkum boðum en að þessu sinni var dóttir Móeiðar og knattspyrnumannsins Harðar Björgvins Magnúsonar stödd í boðinu. 

Dóttir þeirra Móeiðar og Harðar kom í heiminn í lok apríl, nokkrum vikum fyrir settan dag og gera má ráð fyrir að ekki hafi verið hægt að halda almennilegt boð áður en sú stutta kom í heiminn. Einnig er líklegt að kórónuveirufaraldurinn hafi sett strik í reikninginn. Sömuleiðis býr skipuleggjandinn Alexandra Helga á Englandi ásamt eiginmanni sínum. Hún er nú stödd á Íslandi og gat loks fagnað með vinkonu sinni. 

Eins og í alvöru steypiboðum opnaði móðirin pakka með vinkonum sínum. Skreytingarnar voru gæsilegar og var bleiki liturinn áberandi. Var meðal annars skreytt með blöðrum og boðið upp á glæsilega köku, makkarónur og súkkulaðihúpuð jarðaber. 

Skreytingarnar voru fallegar.
Skreytingarnar voru fallegar. Skjáskot/Instagram
Alexandra Helga birti myndir af mæðgunum á Instagram.
Alexandra Helga birti myndir af mæðgunum á Instagram. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert