Síðustu sjö mánuðir besta tímabil lífs Diaz

Cameron Diaz líður vel í móðurhlutverkinu.
Cameron Diaz líður vel í móðurhlutverkinu. AFP

Leikkonan Cameron Diaz hefur dregið sé í hlé frá Hollywood og einbeitir sér nú að dótturinni Raddix og víninu Avaline sem er að koma á markað. Í viðtali við Rolling Stone segir móðirin nýbakaða að móðurhlutverkið sé besta tímabil lífs hennar. 

Hin 47 ára gamla leikkona eignaðist sitt fyrsta barn með eiginmanni sínum, rokkaranum Benji Madden, um síðustu áramót.

„Á síðustu sjö mánuðum byrjaði ég besta tímabil lífs míns: Móðurhlutverkið! Svo það hefur allt snúist um heimilið og fjölskylduna,“ sagði Diaz þegar hún var spurð hvað hún hefur gert í samkomubanni.

Eiginmaður Diaz er tónlistarmaður og sjálf er hún mikil áhugamanneskja um tónlist. Þar sem þau eiga lítið barn verða barnalög oftar en ekki fyrir valinu. Segir hún Madden hafa samið að minnsta kosti nokkur lög fyrir dóttur sína. 

Með í viðtalinu er frumkvöðullinn Katherine Power en hún framleiðir vínið Avaline með Diaz. Segir hún að þær hafi verið duglegar að borða kvöldmat á verönd Diaz ásamt vinum eða heima hjá sér í samkomubanninu.

Benji Madden og Cameron Diaz eiga dóttur.
Benji Madden og Cameron Diaz eiga dóttur. Samsett mynd /AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert