Nicki Minaj á von á barni

Nicki Minaj.
Nicki Minaj. AFP

Rapparinn Nicki Minaj á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum Kenneth Petty. Í tilefni af því deilir stjarnan litríkum bumbumyndum af sér á Instagram eins og hennar er von og vísa. 

Hún hefur áður deilt áhyggjum sínum af foreldrahlutverkinu. Í viðtali 2014 segir hún versta ótta sinn að vera of heltekin af vinnu að hún gleymi að lifa lífinu til fulls. „Ef ég verð búin með fimmtu plötuna mína og verð ekki búin að eignast barn fyrir þann tíma þá, sama hversu rík ég er, verð ég vonsvikin sem kona. Mér líður eins og ég hafi verið sett hér til þess að verða móðir. Ég verð örugglega gift áður en ég eignast börn. Ég mun passa upp á að gera hlutina í réttri röð,“ sagði Minaj.

View this post on Instagram

#Preggers 💛

A post shared by Barbie (@nickiminaj) on Jul 20, 2020 at 7:21am PDT

View this post on Instagram

A post shared by Barbie (@nickiminaj) on Jul 20, 2020 at 7:43am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert