Þakklát fyrir að Bloom kunni á allt barnadótið

Katy Perry og Orlando Bloom.
Katy Perry og Orlando Bloom. AFP

Tónlistarkonan Katy Perry á von á sínu fyrsta barni í sumar. Hún er mjög þakklát fyrir að unnusti hennar, leikarinn Orlando Bloom, eigi 9 ára soninn Flynn, og búi þar af leiðandi af góðri reynslu. 

„Þegar við fórum að velja barnavagn vissi hann nákvæmlega hvaða vagn við ættum að velja. Og sumir vagnarnir voru svaka fínir, með leður handfangi og bla bla bla. Og mig langaði ótrúlega í þá. En hann sagði bara „Nei ég skal sýna þér hvaða vagn við eigum að velja. Þennnan tekur þú upp í miðjunni og hann opnast og þetta er bara „búmm“ eins og regnhlíf,“ sagði söngkonan. 

„Ég var svo þakklát fyrir að hann veit þetta því ég hefði valið einhvern risa stórann jálk en við gátum forðast það því hann er búinn að gera þetta áður, ég er mjög þakklát fyrir það,“ sagði Perry. 

Perry á aðeins nokkrar vikur eftir af meðgöngunni og segist vera mjög þrútin um þessar mundir. „Allt er þrútið. Hendurnar mínar eru þrútnar. Fæturnir mínir eru þrútnir. Ég er í sandölum,“ sagði Perry og bætti við að hún nálgaðist 86 kílóin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert