Blue Ivy Carter, átta ára dóttir Beyoncé, birtist í nýju myndbandi Beyoncé sem lýsa má einna helst sem sjónrænni tónlistarplötu og ber nafnið Black is King.
Carter er þar í litlu hlutverki, klædd hvítum prinsessukjól með perlukórónu og situr og horfir á dansleik.
Beyoncé er titluð handritshöfundur, leikstjóri og framleiðandi Black is King en þar er hún að vinna enn frekar með þemu Lion King og útfærir á sinn hátt fyrir Disney Plus og byggir á tónlist frá The Lion King: The Gift sem kom út á síðasta ári en þá lék Beyoncé Nölu.