Raunveruleikastjörnurnar og tvíburarnir Nikki og Brie Bella voru samferða á meðgöngunni en settur dagur hjá þeim var með tveggja vikna millibili. Systurnar eru svo samrýndar að svo fór að þær eignuðst syni sína næstum því sama dag en önnur systirin fæddi son 31. júlí en hin 1. ágúst.
Tvíburasysturnar greindu frá komu barna sinna á Instgram með svipuðu myndum.
„Þetta er strákur!!! Við erum gagntekin af gleði og allir eru heilbrigðir,“ skrifaði Brie Bella en hún á fyrir eitt barn með eignmanni sínum Daniel Bryan.
„Strákurinn okkar er kominn og við gætum ekki verið hamingjusamari eða meira ástfangnari,“ skrifaði Nikki Bella og greindi frá því að strákurinn hefði komið í heiminn síðasta dag júlímánaðar. Strákurinn er fyrsta barn Nikki Bella og unnusta hennar, Artem Chigvintsev.
Það þótti athyglisvert þegar systurnar greindu frá því að þær ættu báðar von á barni. Þær þvertóku þó fyrir að hafa farið í tæknifrjóvgun til þess að vera óléttar á saman tíma og sögðu erfitt að skipuleggja barneignir.
View this post on InstagramA post shared by Nikki Bella (@thenikkibella) on Aug 2, 2020 at 1:36pm PDT
View this post on InstagramIt’s a BOY!!! 💙 8-1-2020 We are overwhelmed with joy and everyone is healthy!!!
A post shared by Brie Bella (@thebriebella) on Aug 2, 2020 at 11:40am PDT
View this post on InstagramA post shared by Nikki Bella (@thenikkibella) on Jul 6, 2020 at 9:45am PDT