Var með hríðir í fjóra daga

Jodie Turner-Smith hefur leikið í Nightflyers, The Last Ship og …
Jodie Turner-Smith hefur leikið í Nightflyers, The Last Ship og Queen & Slim. Hún er gift Joshua Jackson sem lék í Dawsons Creek og The Affair. Skjáskot/Instagram

Breska leikkonan Jodie Turner-Smith segist hafa verið með hríðir í fjóra daga. Hún og eiginmaður hennar Joshua Jackson segjast hafa valið heimafæðingu á tímum kórónuveirufaraldursins vegna þess hve slök fæðingarþjónustan er í Bandaríkjunum fyrir svartar mæður. 

„Við ákváðum heimafæðingu því rannsóknir benda til þess að fæðingartengd dauðsföll séu þrisvar sinnum meiri meðal svartra kvenna en hvítra sem bendir til kerfislægrar mismununar,“ segir Turner-Smith í viðtali við breska Vogue.

Þá segir hún heimafæðinguna hafi verið kjörna á tímum kórónuveirufaraldursins. „Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að sjúkrahús myndu takmarka það hver mætti vera viðstaddur fæðingu og neyða konur til þess að fæða börn án stuðnings þeirra sem þær kysu að hafa með sér. Með því að fæða heima gat ég tryggt það sem allar mæður eiga rétt á. Fullum stuðningi.“

Fæðingin tók fjóra daga. „Á þriðja degi var ég orðin mjög þreytt. Ég og maðurinn minn áttum saman kyrrðarstund. Hann lét renna í bað og ég talaði við líkamann minn og dóttur mína. Á þeirri stundu tók hann mynd af mér. Í henni kristallast þessi helga stund af fjölskyldu að verða til.“

Mikill þrýstingur á mæðrum

Turner-Smith segist afar þakklát eiginmanni sínum sem var henni stoð og stytta í öllu ferlinu. „Ég er mjög lánsöm að eiga mann sem fylgir mér um heim allan og gerir mér kleift að sinna störfum mínum. Við áttum bæði mæður sem þurftu að gera allt sjálfar og við vorum bæði staðráðin í að búa til stuðningskerfi fyrir hvort annað. 

Þá segist Turner-Smith hlæja að einfeldninni sem hún sýndi í upphaf meðgöngunnar. „Ég hélt að ég gæti bara átt barn og byrjað að vinna strax mánuði síðar. Allt yrði eðlilegt. Ég var greinilega að finna fyrir þeim þrýstingi sem mæður verða fyrir. Að allt eigi bara að ganga sinn vana gang og líkaminn fari strax aftur í samt horf. Það á varla að sjást að maður hafi eignast barn.“

Jodie Turner-Smith hefur leikið í Nightflyers, The Last Ship og Queen & Slim. Hún er gift bandaríska leikaranum Joshua Jackson sem lék í sjónvarpsþáttunum Dawsons Creek og The Affair.

View this post on Instagram

big soulmate energy. #1 daddy. just checking in to say that us girls are so lucky to have ya 🤟🏿🤟🏿🤟🏿

A post shared by Jodie Turner-Smith (@jodiesmith) on Jun 24, 2020 at 4:10pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert