Teigen og Legend bæta við þriðja barninu

John Legend ásamt eiginkonu sinni Chrissy Teigen.
John Legend ásamt eiginkonu sinni Chrissy Teigen. AFP

Hjónin Chrissy Teigen og John Legend eiga von á þriðja barni sínu saman. Fyrir eiga þau strákinn Miles sem er tveggja ára og stúlkuna Luna sem er fjögurra ára. Þau áttu bæði börnin með aðstoð tæknifrjóvgunar.

Teigen frumsýndi óléttubumbuna í nýju myndbandi John Legend þar sem hann fer mjúkum höndum um kvið hennar. Stuttu síðar birti hún svo almennilega bumbumynd af sér á Instagram Stories sem tekin var á heimili þeirra (en reyndar gleymdu að taka til í bakgrunninum).

Teigen frumsýndi bumbuna í tónlistarmyndbandi Legend og á Instagram skömmu …
Teigen frumsýndi bumbuna í tónlistarmyndbandi Legend og á Instagram skömmu síðar. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert