Gigi Hadid á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum Zayn Malik. Hadid er mikil hestakona en á meðgöngunni hefur hún ákveðið að setja öryggið á oddinn og er hætt að fara á hestbak.
„Á fyrstu stigum meðgöngunnar fór ég á hestbak, þó bara á gönguhraða, en ekki lengur. Sakna þess,“ segir Hadid í athugasemdakerfi sínu á Twitter en aðdáandi hafði spurt hvort hún væri enn að stunda hestamennsku á meðgöngunni. „Ég ver þó enn miklum tíma með hestunum og gef þeim gulrætur að narta í.“