Kynnti barnabók ber að ofan í svuntu

Channing Tatum er að senda frá sér barnabók.
Channing Tatum er að senda frá sér barnabók. Skjáskot/Instagram

Leikarinn Channing Tatum fann barnið innra með sér í kórónuveirufaraldrinum og skrifaði barnabók. Kynningarmynd hans á mögulega frekar að höfða til foreldra en barna en hinn vöðvastælti Tatum er ber að ofan með svuntu á myndinni. 

„Ég veit ekki með ykkur en hlutirnir urðu skrítnir í sóttkví. Ég endaði á því að loka mig óvart inni í herbergi sjö ára dóttur minnar. Og ég endaði á að finna barnið innra með mér. Svo þetta er það sem ég bjó til handa litlu stelpunni minni. Sem er líklega litla stelpan innra með mér. Takk fyrir að lesa,“ skrifaði Tatum á Instagram við myndina af sér. Á myndinni má sjá leikarann lesa fyrir bangsa á gólfinu í svuntu og í íþróttabuxum. 

Bók Tatum heitir The One and Only Sparkella og kemur ekki út fyrr en í maí 2021. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert