Ferdinand-hjónin upplýsa um kynið

Rio og Kate Ferdinand.
Rio og Kate Ferdinand. Skjáskot/Instagram

Fótboltakappinn Rio Ferdinand og kona hans Kate eiga von á sínu fyrsta barni saman en þau giftu sig fyrir ári. Þau héldu á dögunum veglega kynjaveislu þar sem kom í ljós að þau ættu von á strák og bláum pappírshjörtum rigndi yfir gestina.

Fyrir á Rio Ferdinand þrjú börn sem eru á aldrinum 9 til 14 ára og heita Tia, Tate og Lorenz. Kate Ferdinand hefur verið mjög opinská á samfélagsmiðlum og deilt með fylgjendum sínum upplifun sinni á meðgöngunni. Hún hefur viðurkennt að vera með mikið samviskubit yfir að hafa ekki getað ekki sinnt stjúpbörnunum nógu vel meðan hún glímdi við þreytu og aðra meðgöngukvilla.

View this post on Instagram

..... it’s a boy 💙💙💙 me and tia are outnumbered 😮🙊🤣

A post shared by Kate Ferdinand (@xkateferdinand) on Sep 8, 2020 at 11:32pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert