Gossip Girl og You-stjarnan Penn Badgley og eiginkona hans Domino Kirke eignuðust sitt fyrsta barn saman. Fyrir á Kirke soninn Cassius sem er 10 ára.
Kirke greindi frá fæðingu barnsins á Instagram og sagði að það væru 40 dagar síðan sonur þeirra kom í heiminn. Kirke og Badgley gekk erfiðlega að eignast hann en hún missti fóstur oft áður en hún varð ólétt.
Þegar þau tilkynntu um óléttuna í febrúar síðastliðinn opnaði Kirke sig um að þau hefðu verið tilbúin að gefast upp á að eignast barn saman. „Meðganga eftir missi er allt annað. Eftir tvö fósturlát í röð vorum við tilbúin að hætta. Ég hætti að treysta líkama mínum og byrjaði að taka það í sátt að ég væri búin,“ skrifar Kirke í febrúar.