Mótleikkona Jolie ber vitni

Angelina Jolie og Brad Pitt eru að reyna að klára …
Angelina Jolie og Brad Pitt eru að reyna að klára forsjármál sitt. AFP

Leikkonan Jillian Armenante ber vitni í forsjármáli Brads Pitts og Angelinu Jolie. Leikkonan lék í myndunum Girl, Interrupted og Mighty Heart með Jolie en er meðal annars þekkt fyrir hlutverk sitt Judging Amy. 

Armenante er á vitnalista Pitts en 21 eru á vitnalista leikarans að því fram kemur á vef ET. Á vitnalistanum eru einnig fjölmargir sálfræðingar. Má sjá mörg af sömu nöfnunum á vitnalista Jolie. Armenante á að bera vitni um samskipti sín við Jolie, Pitt og börnin og það sem hún hefur tekið eftir. 

Gert er ráð fyrir að mál jolie verði tekið fyrir frá 5. október til 21. október. Eftir margra ára deilur eru foreldrarnir sagðir vera á sama máli um að ala upp börnin saman. Þau vilja börnum sínum fyrir bestu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert