Með milljón króna skólatösku

Stormi Webster.
Stormi Webster. skjáskot/Instagram

Hin tveggja og hálfs árs gamla Stormi Webster, dóttir raunveruleikastjörnunnar Kylie Jenner og rapparans Travis Scotts, var heldur betur uppstríluð fyrsta daginn sinn í heimaskóla. Jenner birti mynd af dóttur sinni á fyrsta deginum með skólatöskuna eins og foreldrar gjarnan gera. 

Það sem hefur vakið athygli er að Stormi litla var með bakpoka frá franska tískuhúsinu Hermés. Hermés Kelly Ado-bakpokinn kostar um 12 þúsund bandaríkjadali eða 1,6 milljónir íslenskra króna. 

Nýi Hermés-bakpokinn passar án efa vel við töskusafn Stormi litlu, sem á einnig handtösku frá merkinu. Hún á einnig í það minnsta tvær handtöskur frá Louis Vuitton. Þær töskur eru þó töluvert ódýrari en bakpokinn og kosta bara á milli 100 og 200 þúsund íslenskar krónur.

Stormi litla tilbúin í skólann.
Stormi litla tilbúin í skólann. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert