Fer ekki leynt með 23 ára gamla launsoninn

Arnold Schwarzenegger.
Arnold Schwarzenegger. AFP

Vöðvatröllið Arnold Schw­arzenegger er löngu hættur að fela launson sinn. Sonurinn, Joseph Beana, varð 23 ára á dögunum og fær hann opinberar hamingjuóskir frá föður sínum eins og hálfsystkini hans. 

„Ég elska að sjá þig taka framförum á æfingum, í vinnu og vera hluti af lífi þínu. Get ekki beðið eftir að sjá hvað kemur næst. Ég elska þig,“ skrifaði Schw­arzenegger sem óskaði syni sínum jafnframt til hamingju með afmælið. 

Tortímandinn hefur ekki alltaf verið eins opinn með líf sonar síns. Þegar Baena var á 14. ári kom í ljós að móðir hans, hús­hjálp­in Mildred Baena, hefði eign­ast hann með vinnu­veit­anda sín­um, leik­ar­an­um og síðar rík­is­stjór­an­um Arnold Schw­arzenegger. Schw­arzenegger eignaðist son nokkr­um dög­um áður en Baena kom í heim­inn með eig­in­konu sinni, Mariu Shri­ver, sem skildi við eig­in­mann sinn þegar fram­hjá­haldið kom í ljós. 

Feðgarnir virðast ná vel saman og eiga sameiginlegt áhugamál, líkamsræktina. 

Sonurinn Christopher Schw­arzenegger fékk svipaða afmæliskveðju þegar hann átti 23 ára afmæli nokkrum dögum áður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert