Bjarni Benediktsson skreytti hestaköku fyrir afmæli dóttur sinnar í ár. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins var fljótur að túlka þemað í ár á sinn hátt.
„Mjög flott kaka hjá Bjarna í ár. Alla vega þemað,“ skrifaði Sigmundur Davíð á Facebook. Svo vill til að hestur er einmitt í merki Miðflokksins og er Sigmundur Davíð líklega að benda á þá tengingu.
Líklega var þó ekki miðflokksþema í barnaafmælinu en spurning hvort Sigmundur Davið svari og skreyti köku með fálkaþema í afmæli dóttur sinnar sem er einmitt á svipuðum aldri og yngsta barn Bjarna.
Mjög flott kaka hjá Bjarna í ár. Alla vega þemað.
Posted by Sigmundur Davíð Gunnlaugsson on Mánudagur, 5. október 2020