Opinberaði óléttuna á forsíðunni

Kelly Rowland á von á sínu öðru barni.
Kelly Rowland á von á sínu öðru barni. AFP

Tónlistarkonan Kelly Rowland og eiginmaður hennar Tim Weatherspoon eiga von á barni. Rowland tilkynnti óléttuna á forsíðu tímaritsins Women's Health. 

Þetta er annað barn þeirra Rowland og Weatherspoons saman, en þau eiga soninn Titan. Í viðtalinu við Women's Health segir Rowland að hún sé mjög þakklát fyrir að geta eignast börn en hún verður 40 ára í febrúar næstkomandi. 

Þau hjónin hafi verið búin að ræða að eignast annað barn á léttu nótunum. Síðan hafi heimsfaraldurinn komið og þau ákveðið að prófa og sjá hvort þau gætu eignast annað barn. Það kom þeim mikið á óvart að hún varð ólétt stuttu seinna. 

„Ég hugsaði fyrst: Ó Guð, aðdáendur mínir verða fyrir svo miklum vonbrigðum, þeir vildu plötu fyrst, en núna fá þeir barn. Þannig að ég hugsaði með mér að ég yrði að finna út úr þessu svo þeir fengju hvort tveggja,“ sagði Rowland.

View this post on Instagram

SURPRISE!! My @womenshealthmag cover issue is online now and on newsstands next week!

A post shared by Kelly Rowland (@kellyrowland) on Oct 7, 2020 at 5:05am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert