Spy Kids-stjarna verður faðir

Daryl Sabara og Meghan Trainor eiga von á barni.
Daryl Sabara og Meghan Trainor eiga von á barni. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Meghan Trainor og Spy Kids-stjarnan Daryl Sabara eiga von á sínu fyrsta barni saman. Trainor greindi frá þessu í spjallþætti Hoda Kotb í vikunni. 

Sabara deildi síðar sónarmynd á Instagram til að tilkynna um væntanlegan erfingja. Trainor og Sabara gengu í það heilaga í desember árið 2018. Þá voru þau mjög spennt fyrir barneignum. 

Seinna sagði Trainor að þau væru ekkert að flýta sér en að hún vildi samt fara eignast börn fljótlega. 

„Ég veit að mig langar til þess fljótlega, en mig langar fyrst að verða mjög, mjög heilbrigð. Ég fylgist með öllu því sem ég borða. Ég fer á æfingu á hverjum degi, og ég er bara virkilega góð við líkamann núna,“ sagði Trainor. 

View this post on Instagram

I love you @meghan_trainor and I can’t wait to start a family with you ❤️🎁

A post shared by Daryl Sabara (@darylsabara) on Oct 7, 2020 at 7:19am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert