Á von á 6. barninu á áttræðisaldri

David Foster og Katharine McPhee eiga von á barni saman.
David Foster og Katharine McPhee eiga von á barni saman. AFP

Söngkonan Katharine McPhee og eiginmaður hennar David Foster eiga von á sínu fyrsta barni saman. Þetta er þó ekki fyrsta barn Fosters, sem verður 71 árs í nóvember, en fyrir á hann fimm dætur og sjö barnabörn. 

Mikill aldursmunur er á McPhee og Foster en McPhee er 36 ára og sem fyrr segir verður Foster 71 árs í nóvember. Þau sáust nýlega á götum Los Angeles-borgar að versla fyrir barnið. 

Parið gekk í það heilaga í júní árið 2019 en þau kynntust fyrst árið 2006 þegar hann var leiðbeinandi hennar og fleiri þátttakenda í fimmtu seríu af American Idol. 

Dætur Fosters úr fyrri hjónaböndum eru Allison, 50 ára, Amy, 46 ára, Sara, 39 ára, Erin, 38 ára, og Jordan, 34 ára. Erin hefur sagt í viðtali að McPhee sé jákvæð viðbót í fjölskylduna og segir þær systur stundum kalla hana mömmu í gríni. 

„Það hefur verið áhugavert að sjá hvað aldursmunurinn spilar jákvætt hlutverk í sambandi þeirra. Pabbi okkar er af þeirri kynslóð þar sem konur eru meira til baka. Hann er líka til baka með tilfinningar sínar. Kat hefur virkilega fengið hann til að opna sig meira. Við höfum lent í rifrildum og þá segir Kat honum að hann verði að taka símann upp og hringja í okkur. Hún lætur hann opna sig og gefa tilfinningum sínum meira pláss,“ sagði Eron. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert