Bakar í beinni með dætrum sínum

Eva Laufey Kjaran og dætur hennar verða í beinni útsendingu …
Eva Laufey Kjaran og dætur hennar verða í beinni útsendingu á sunnudaginn klukkan 11. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjölmiðlakonan og baksturssnillingurinn Eva Laufey Kjaran ætlar að baka í beinni útsendingu ásamt dætrum sínum á sunnudaginn. Eva leyfir dætrum sínum Ingibjörgu Rósu og Kristínu Rannveigu oft að aðstoða sig við baksturinn og sýnir frá því á Instagram. 

„Við fórum í gegnum fyrstu bylgjuna af faraldrinum með því að baka nógu mikið og klæða okkur í kjóla. Við ætlum að halda því áfram og koma okkur í gegnum þessa bylgju! Ég og stelpurnar mínar ætlum að baka með ykkur í beinni hér á Instagram sunnudaginn 11. október klukkan 11.00. Þetta tókst mjög vel síðast og við erum spenntar að baka með ykkur á sunnudaginn,“ skrifar Eva Laufey á Instagram.

View this post on Instagram

Bakstursklúbbur👩🏼‍🍳👨🏽‍🍳👩🏻‍🍳👨🏼‍🍳 Við fórum í gegnum fyrstu bylgjuna af faraldrinum með því að baka nógu mikið og klæða okkur í kjóla. Við ætlum að halda því áfram og koma okkur í gegnum þessa bylgju! Ég og stelpurnar mínar ætlum að baka með ykkur í beinni hér á Instagram sunnudaginn 11.október klukkan 11.00. Þetta tókst mjög vel síðast og við erum spenntar að baka með ykkur á sunnudaginn. Það kemur í ljós á sunnudaginn hvað við ætlum að baka en þið þurfið eftirfarandi: Hráefni: · 5 dl hveiti · 2 egg · 3 dl hrein AB mjólk · 2 - 3 dl mjólk · 1 tsk vanilludropar · 3 tsk lyftiduft · salt á hnífsoddi · 3 msk brætt smjör · 1 msk sykur Meðlæti, frjálst val en til dæmis: · Nutella · Jarðarber · Síróp · Bláber · Bananar · Súkkulaðibitar · Hnetusmjör Áhöld: · Skál · Pískari · dl mál · Panna · Spaði Ætlar þú ekki örugglega að vera með okkur í bakstursklúbbnum? Við erum spenntar og verðum klárar á sunnudaginn 11.október klukkan 11.00. Þið megið endilega deila þessu áfram ef þið þekkið unga bakara sem gætu haft gaman að þessu með okkur 😊

A post shared by Eva Laufey Kjaran (@evalaufeykjaran) on Oct 9, 2020 at 3:30am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert