Þrítug Bachelorette-stjarna frystir egg sín

Becca Kufrin ætlar að frysta egg sín.
Becca Kufrin ætlar að frysta egg sín. Skjáskot/Instagram

Bachelorette-stjarnan Becca Kufrin ætlar ekki að renna út á tíma þegar kemur að barneignum. Raunveruleikaþáttastjarnan er í meðferð með það að markmiði að frysta egg. Kufrin fæddist árið 1990 og er því bara þrítug. 

„Ég er í því ferli að láta frysta egg mín og ég sprautaði mig í fyrsta skipti í gærkvöldi. Ég komst að því að mig langaði að mynda þetta og deila þessu með ykkur eins mikið og ég get. Mér finnst það svo mikilvægt að við sem konur þekkjum líkama okkar og valmöguleika,“ sagði Kufrin við fylgjendur sína á Instagram á dögunum. „Ég er ekki gömul en ég er ekki mjög ung heldur og mig langar í börn einn daginn en ekki akkúrat núna. Svo af hverju ekki að gera þetta núna í samkomubanni.“

Kufrin hætti með unnusta sínum, Garrett Yrigoyen, í september. Hún trúlofaðist Yrigoeyn í lok 14. þáttaraðar af raunveruleikaþættinum. 

Kufrin er ekki fyrsta stjarnan sem greinir frá því að hún ætli að láta frysta úr sér egg til að halda möguleikum sínum opnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert