Brimbrettakonan Hamilton á von á þriðja barninu

Bethany Hamilton á von á þriðja barninu.
Bethany Hamilton á von á þriðja barninu. skjáskot/Instagram

Brimbrettakonan Bethany Hamilton á von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum Adam Dirks. Hamilton komst í fréttir þegar hún var aðeins 13 ára gömul en þá lifði hún af hákarlaárás. 

Hamilton missti vinstri hönd sína í slysinu en hefur þó ekkert gefið eftir í brimbrettaiðkun sinni og unnið til fjölda verðlauna síðan hún missti höndina. 

Í dag er hún gift brimbrettakappanum Dirks og búa þau saman á Havaí. Þau eiga synina Tobias, fimm ára, og Wesley sem er tveggja ára.

View this post on Instagram

Every blessing comes from above ♥️🥰✨ The boys have both gotten to feel baby kicking and they are pumped big brothers!

A post shared by Bethany Hamilton (@bethanyhamilton) on Oct 19, 2020 at 2:59pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert