Sambandið aldrei betra en eftir fæðingu dótturinnar

Samband Zayn Malik og Gigi Hadid hefur aldrei verið betra.
Samband Zayn Malik og Gigi Hadid hefur aldrei verið betra. Larry Busacca

Samband stórstjarnanna Gigi Hadid og Zayn Malik hefur aldrei verið betra en nú um þessar mundir. Hadid og Malik eignuðust sitt fyrsta barn saman 23. september síðastliðinn. 

„Samband Zayns og Gigi er betra en það hefur nokkurn tímann verið, samskipti þeirra og tíminn sem þau eyða saman. Þau hafa aldrei virst hamingjusamari,“ sagði heimildarmaður UsWeekly um málið.

Ýmislegt hefur gengið á í sambandi þeirra í gegnum árin en þau byrjuðu fyrst saman árið 2015. Þau hættu svo nokkrum sinnum saman og byrjuðu aftur. Í byrjun árs 2020 tilkynntu þau að þau væru saman og í apríl staðfestu þau fréttir um að þau ættu von á barni. 

Litla stúlkan kom svo í heiminn í lok september.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert