Pálína og Kjartan eignuðust stúlku

Kjartan Atli Kjartansson og Pálína María Gunnlaugsdóttir eignuðust stúlku um …
Kjartan Atli Kjartansson og Pálína María Gunnlaugsdóttir eignuðust stúlku um helgina.

Fjölmiðlamaðurinn Kjartan Atli Kjartansson og körfuboltastjarnan Pálína María Gunnlaugsdóttir eignuðust litla stúlku í fyrradag. Kjartan greinir frá fæðingu stúlkunnar á Twitter í gær. 

Þessi fallega og hrausta stúlka kom í heiminn í gær, rétt fyrir 11. Hún var 13 merkur og 49 sentímetrar. Pálína nálgaðist fæðinguna eins og enn einn úrslitaleikinn og stóð uppi sem sigurvegari eins og hún þekkir svo vel. Litla stelpan okkar hefur fengið vinnuheitið Ljónið,“ skrifaði Kjartan í færslu sinni á Twitter. 

Fyrir eiga þau Kjartan og Pálína saman eina dóttur.

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert