Segir soninn kátari en dótturina

Adam Brody segir að barn númer tvö sé mun kátara …
Adam Brody segir að barn númer tvö sé mun kátara heldur en fyrsta barn þeirra hjóna. Frederick M. Brown

Stjörnuparið Adam Brody og Leighton Meester eignuðust sitt annað barn fyrr á þessu ári. Brody segir að yngra barnið, sonurinn, sé mun kátari en dóttir þeirra sem er fimm ára. 

„Barn númeri tvö virðist vera kátara. Ég veit ekki hvort þetta er alheimslögmál, en ég meina, bæði börnin mín eru mjög hamingjusöm, en það virðist sem þegar barn númer tvö kom í heiminn hafi það verið: „Ég er bara kátur með að vera hér. Farðu bara og gerðu það sem þú þarft að gera. Ég veit að þú ert upptekinn. Ég er bara að fylgjast með,““ sagði Brody í viðtali í hlaðvarpsþætti Dax Shepherds, Armchair Expert.

Brody og Meester greindu frá því í september að litli gaurinn væri kominn í heiminn. Þau hafa enn ekki greint frá nafni hans. Stóra systir hans og frumburður þeirra hjóna heitir Arlo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert