Uppáhaldsbók Archies komin á íslensku

Meghan og Archie lesa bókina Önd! Kanína!
Meghan og Archie lesa bókina Önd! Kanína! AFP

Bókin Duck! Rabbit! eftir Amy Krouse Rosenthal og Tom Lichtenheld er komin út á íslensku en íslenskur titill hennar er Önd! Kanína! Bókin er heimsfræg en hún er einmitt ein af uppáhaldsbókum Archies litla, sonar Harrys Bretaprins og Meghan hertogaynju af Sussex. 

Bókina lásu Meghan og Archie saman í tilefni af eins árs afmæli hans í maí síðastliðnum. Archie fékk bókina að gjöf frá Opruh Winfrey þegar hann fæddist. 

Önd! Kanína! hefur notið mikilla vinsælda um heim allan og segir í umfjöllun New York Times að hún sé fyndin á hvaða tungumáli sem er. Bókin er gefin út hjá Drápu. 

Ljósmynd/Drápa
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert