Ákvað að ráða ekki fóstru fyrir frumburðinn

Nicki Minaj hefur ekki notið aðstoðar barnsfóstru síðastliðinn mánuð.
Nicki Minaj hefur ekki notið aðstoðar barnsfóstru síðastliðinn mánuð. AFP

Rapparinn Nicki Minaj ákvað að sleppa því að ráða barnfóstru til að hjálpa sér að hugsa um frumburð sinn. Minaj eignaðist sitt fyrsta barn með eiginmanni sínum Kenneth Petty fyrir um mánuði. 

Aðdáandi Minaj kvartaði sáran undan því að hún væri ekki búin að ráða barnfóstru svo hún gæti sinnt starfi sínu sem rappari. „Af hverju getur Nicki ekki bara verið venjuleg stjarna og ráðið barnfóstru? Ég sakna þín, stelpa,“ skrifaði aðdáandinn á Twitter. „Allir segja mér að gera það. Haha. Ég ætti að gera það,“ svaraði Minaj. 

Hún hélt svo áfram að tala um af hverju hún vildi ekki gera það en ástæðan er sú að hún vill virkilega vera til staðar fyrir son sinn og veita honum alla sína athygli. Hún sagðist hafa reynt að skrifa eitthvað á Twitter kvöldið áður á meðan hún var að gefa honum brjóst. Sonurinn hefði ekki tekið vel í það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert