Eldri bróðir Malcolms á líka von á barni

Christopher Masterson og Yolanda Pecorero eiga von á sínu fyrsta …
Christopher Masterson og Yolanda Pecorero eiga von á sínu fyrsta barni. Skjáskot/Instagram

Malcolm in the Middle-stjarnan Christopher Masterson og eiginkona hans Yolanda Pecoraro eiga von á sínu fyrsta barni saman. Masterson er hvað þekktastur fyrir að fara með hlutverk elsta bróðurins í þáttunum Malcolm in the Middle.

Bróðir hans í þáttunum, Frankie Muniz, á einnig von á sínu fyrsta barni. 

Pecoraro greindi frá óléttunni á instagram þegar hún birti mynd af sér á ströndinni og skrifaði „Baby Masterson“. 

Masterson og Pecoraro trúlofuðu sig í júní 2018 og gengu svo í það heilaga á Amalfi-strönd á Ítalíu í ágúst síðastliðnum. 

View this post on Instagram

Baby Masterson 🌸

A post shared by Yolanda Pecoraro Masterson (@yoliemasterson) on Nov 6, 2020 at 2:34pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert