„Allar sögurnar eru sannar“

Mömmur tvær, María Rut og Ingileif með hundinn Míló og …
Mömmur tvær, María Rut og Ingileif með hundinn Míló og son sinn Rökkva. Eldri sonur þeirra, Þorgeir,var vant við látinn. María Rut og Ingileif segja skipta miklu máli að fræða börn snemma um fjölbreytileikann. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Því fyrr á æviskeiðinu sem við tölum við börn um fjölbreytileikann, því auðveldara gerum við börnum sem eru á einhvern hátt utan við normið að líða ekki eins og þau séu ein í sínum aðstæðum. Okkar draumur er að öll börn, hvort sem þau eru í hinsegin fjölskyldum, fötluð eða af erlendum uppruna, geti speglað sig og sinn veruleika með einhverjum hætti í þessari bók,“ segja þær Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir, höfundar nýrrar barnabókar sem heitir Vertu þú!, en bókin sú geymir litríkar sögur af fjölbreytileikanum og hvetur til fordómaleysis og víðsýni.

„Þessi hugmynd að bók hefur velkst með okkur allan þann tíma sem við höfum verið foreldrar. Ingileif kom inn í líf mitt og eldri stráksins okkar þegar hann var fimm ára og við áttuðum okkur fljótlega á hversu lítill fjölbreytileiki er í barnabókum. Þar eru persónur oft mjög einsleitar og strákurinn okkar spurði hvers vegna það væri aldrei neinn í bókunum sem átti fjölskyldu eins og hann, með tveimur mömmum,“ segir María Rut og bætir við að þegar þær Ingileif stofnuðu fyrir fjórum árum fræðsluvettvang á samfélagsmiðlum, Hinseginleikann, þá hafi þær ákveðið að skrifa barnabók sem væri af sama meiði.

„Þar fáum við allskonar fólk til okkar sem segir sína sögu og við erum svo heppnar að nokkrir þeirra einstaklinga hafi leyft okkur að nota sínar sögur í bókinni. Allar sögurnar eru sannar en í nokkrum þeirra höfum við breytt nöfnum. Okkur finnst mikilvægt að börn geti séð að það er raunveruleg manneskja af holdi og blóði þarna úti sem er eins og þau. Þetta er ekki skáldskapur og því geta börnin horft til einstaklinga sem eru að spjara sig úti í samfélaginu, einmitt af því að þeir eru þeir sjálfir.“

Börn eru ekki fordómafull

„Útgangspunkturinn í bókinni er að við erum öll einstök, eigum öll ólíka drauma, ólík áhugamál og við lítum ólíkt út, en við erum öll manneskjur sem búa saman í samfélagi. Það að einhver sé ólíkur okkur þýðir ekki að okkur geti ekki líkað vel við viðkomandi. Við samtvinnum allan fjölbreytileikann í þeim skilaboðum sem felast í titli bókarinnar: Vertu þú. Um leið og við fengum hugmyndina að bókinni þá vissum við að við vildum ekki aðeins fókusera á hinsegin, heldur líka á aðra sem eru á jaðrinum. Ekki einvörðungu börn í hinsegin fjölskyldum upplifa að þau séu ein í sínum aðstæðum, líka börn sem finna til dæmis fyrir kvíða og vita ekki hvaða tilfinning það er og kunna ekki að tækla það af því að þau halda að engum öðrum líði þannig. Börn sem á einhvern hátt eru utan við normið mæta líka oft fordómum, en okkar reynsla af börnum er sú að þau eru ekki manneskjurnar sem eru fordómafullar, það er fullorðna fólkið, en börnin bergmála stundum viðhorf þeirra. Fordómar, stríðni og einelti byggist mikið á fáfræði en líka menningarvanda. Sérstaklega í miðstigi grunnskóla og unglingastigi, þá er ákveðinn húmor í gangi sem er oft mjög niðrandi fyrir minnihlutahópa. Okkar von með þessari bók er að hægt sé að taka samtalið strax og börnin eru lítil, til að koma í veg fyrir að krökkum sé strítt eða þau séu útilokuð af því þau eru á einhvern hátt öðruvísi en fjöldinn.“

Nokkur tár féllu hjá okkur

Þær Ingileif og María segja að foreldrar í hefðbundnu fjölskylduformi hafi haft orð á því við þær hversu erfitt þeim finnist að byrja samtöl við börnin sín um fjölbreytileikann.

„Við viljum með bókinni gefa þeim tækifæri til að byrja slíkt samtal við börnin. Þess vegna spyrjum við börnin spurninga í bókinni og út frá þeim geta skapast ótrúlega skemmtilegar umræður milli barns og foreldris, eða þess einstaklings sem er að lesa með þeim, afa eða ömmu, frænku eða frænda,“ segja þær stöllur og bæta við að þær hafi nú þegar fengið fyrirspurnir frá kennurum sem nota bókina í lestri hjá krökkum í fyrstu bekkjum grunnskóla.

„Bókin okkar er líka notuð á leikskólum til að skapa þessa umræðu og við erum afar ánægðar með. Við finnum hversu mikil þörf er í raun fyrir svona bók, líka fyrir transbörn, en við segjum söguna af Ronju í bókinni, transstelpu sem við kynntumst á Hinseginleikanum. Hennar saga er nú þegar farin að hjálpa öðrum transbörnum og við höfum fengið ótrúlega falleg skilaboð þar um. Meðal annars frá einni lítilli transstelpu sem hefur verið að reyna að fikra sig áfram og ekki vitað hvernig hún ætti að koma út fyrir öðrum í fjölskyldunni. Eftir að hún las bókina þá ákvað hún að stíga fram sem transbarn og breytti nafni sínu í Ronja. Nokkur tár féllu hjá okkur við þessi tíðindi og yndislegt að bókin hafi auðveldað barni að þora að vera eins og það er.“

Bókin er líka fyrir fullorðna

Ingileif og María Rut segjast sannfærðar um að allt fullorðið fólk í dag, sem er að ala upp börn, muni mæta þeirri áskorun að þurfa að taka þessa umræðu við börnin sín, því sýnileikinn sé orðinn það mikill, sem betur fer.

„Okkur þykir mjög vænt um skilaboð sem við höfum fengið frá fullorðnu fólki sem segir að það hafi ekki síst sjálft lært mikið á því að lesa bókina okkar. Þetta er nefnilega líka bók fyrir fullorðna, fyrir alla sem koma að uppeldi barna, líka ömmur og afa, því það er kannski helst eldra fólk sem er að kljást við öll þessi nýju hugtök. Þetta fólk talar um að það hafi við lestur bókarinnar fengið innsýn í fjölbreytileikann, hvað hann sé „allskonar“.“

Viðtalið birtist fyrst í Morgunblaðinu laugardaginn 6. desember.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert