Stefnir ekki í hart í forræðisdeilunni

Megan Fox og Brian Austin Green eiga saman þrjá syni.
Megan Fox og Brian Austin Green eiga saman þrjá syni. AFP

Ekki virðist stefna í harða forræðisdeilu á milli leikarahjónanna Brian Austin Green og Megan Fox. Hjónin standa nú í skilnaði og sækja um sameiginlegt forræði yfir sonum sínum þremur sem eru átta, sex og fjögurra ára. 

Fox sótti um skilnað í lok nóvember. Á sama tíma sótti hún um sameiginlegt forræði yfir börnum þeirra. Nú hefur Green svarað að því er fram kemur á vef ET. Þar kemur fram að hann vill einnig sameiginlegt forræði og krefst ekki meðlags frekar en Fox. 

Hollywoodstjarnan Fox sótti einnig um skilnað frá Beverly Hills 90210-stjörnunni fyrir nokkrum árum. Skilnaðurinn gekk aldrei í gegn og stuttu seinna varð Fox ólétt að yngsta syni þeirra. Nú virðist hjónunum þó vera alvara en setja börnin greinilega í fyrsta sætið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert