Konunglegu tvíburarnir af Mónakó, Jacques prins og Gabriella prinsessa, fagna sex ára afmæli sínu. Faðir þeirra Albert prins segir að afmæli þeirra verði með breyttu sniði í ár vegna kórónuveirufaraldursins.
„Áður höfum við haldið upp á afmæli þeirra með ýmsum þemum á borð við safarí eða teiknimyndahetjur og hoppkastala,“ segir prinsinn en nú blasa fjöldatakmarkanir og fjarlægðarreglur við.
„Afmælið þeirra er á skóladegi þannig að við höldum upp á það síðar í vikunni og bjóðum örfáum börnum í litla afmælisveislu eða í mesta lagi fjórum öðrum börnum,“ sagði prinsinn en afmælið verður að miklu leyti utandyra þar sem þau munu fara með börnin í gönguferðir og skoða dýrin á lóðinni.