Fegurðardrottningin Arna Ýr á von á barni

Arna Ýr Jónsdóttir á von á sínu öðru barni.
Arna Ýr Jónsdóttir á von á sínu öðru barni.

Arna Ýr Jóns­dótt­ir, fegurðardrottning og hjúkrunarfræðinemi, og Vign­ir Þór Bolla­son kírópraktor eiga von á barni í júní. Fyrir á parið eina dóttur sem kom í heiminn í fyrra. Arna Ýr varð þekkt á Íslandi þegar hún varð Ung­frú Ísland og síðar Miss Uni­verse.

Arna Ýr birti mynd af dóttur sinni á Instagram í gærkvöldi í rauðum bol sem á stóð ég hlakka til að verða besta stóra systir í heimi. „Og aftur bætist blessun við lífið okkar,“ skrifaði Arna Ýr við myndina. „Við erum svo þakklát og spennt.“

Fylgjendur Örnu Ýrar fengu einnig smá innsýn inn í líf hennar fyrstu vikurnar á meðgöngunni í sögu hennar á Instagram. Þar sagði Arna Ýr að hún hefði verið með mikla ógleði auk þess að hafa ælt annað slagið. Á sama tíma var hún á fyrstu önn í hjúkrunarfræði og þurfti að standa sig vel í klásusprófum í lok annar. Sagðist hún frekar vilja fæða dóttur sína tvisvar sinnum í stað þess að upplifa klásusönn inn í draumanámið með hrikalega ógleði. 

Barnavefur mbl.is óskar parinu til hamingju. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert