Emma Roberts segir margt jákvætt við ástandið

Emma Roberts segir jákvætt að hafa ekki of mikið að …
Emma Roberts segir jákvætt að hafa ekki of mikið að gera í dag vegna kórónuveirunnar.

Leikkonan Emma Roberts segir áhugavert að eiga von á barni á kórónuveirutíma. Að nú sé góður tími til að líta inn á við í stað þess að vera að hlaupa á milli staða, sem sé nokkuð sem konur kunni að meta á meðgöngunni. Hún á von á sínu fyrsta barni á næstu dögum. 

„Suma daga er erfitt að vera ég en stundum er ég bara mjög hamingjusöm og þakklát,“ segir hún í nýlegu viðtalið við Glamour-tímaritið. 

Emma Roberts er frænka leikkonunnar Juliu Roberts og þykja þær einstaklega líkar. 

Í viðtalinu talar hún um kjólana sem hún nánast býr í þessa dagana. Kjóla frá Ganni, Tory Burch og fleiri vörumerkjum sem eru víðir og hægt að nota bæði á meðgöngunni og eftir fæðingu barnsins. 

View this post on Instagram

A post shared by Emma Roberts (@emmaroberts)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert