Barðist í bökkum en aðstoðar nú aðra

Amanza Smith er útsjónarsöm einstæð móðir sem leggur sitt að …
Amanza Smith er útsjónarsöm einstæð móðir sem leggur sitt að mörkum við að hjálpa foreldrum í vanda. mbl.is/skjáskot Instagram.

Amanza Smith úr Selling Sunset-þáttunum á Netflix er ein af þeim sem virðast alltaf koma niður á afturlöppunum. Hún er öflug á samfélagsmiðlum og ef marka má nýjustu fréttir af henni þar fjárfesti hún í íbúð sem hún er að koma sér fyrir í með börnum sínum tveimur.

Nú er hægt að sækja námskeið hjá henni í innanhússhönnun á netinu. Námskeiðið verður á netinu hinn 11. desember í gegnum Huddls sem býður almenningi upp á að hitta uppáhalds frægu persónu sína í spjalli. 

Hluti ágóðans af námskeiðinu fer í Toys for Tots en það er verkefni sem leit dagsins ljós á fimmta áratug síðustu aldar. Þangað geta foreldrar leitað sem ekki hafa efni á að kaupa gjafir handa börnunum sínum fyrir jólin.

Sjálf hefur Smith greint frá því að hafa barist í bökkum með börnin sín tvö sem hún virðist vera að ala upp sjálf þessa dagana.

Þeir sem horfðu á aðra seríu þáttanna Selling Sunset muna án efa eftir því þegar barnsfaðir hennar Ralph Brown hvarf skyndilega úr lífi fjölskyldunnar. Saman eiga þau dótturina Noah sem er tíu ára og soninn Baker, níu ára.

Smith og Brown skildu árið 2012 og voru bæði með forræði yfir börnunum þangað til hann hvarf. Smith greindi frá því að hann hefði verið frábær pabbi og mjög virkur í sambandi við börnin, allt þar til hann hvarf.

Við tók mikill óvissutími, sér í lagi fjárhagslega, fyrir fjölskylduna. Smith ólst sjálf upp með fjarverandi föður. Í gegnum allt þetta hefur hún náð að fóta sig fjárhagslega og virðist nú vera að gefa velgengni sína áfram.

View this post on Instagram

A post shared by AmanZa (@amanzasmith)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert